Innskráning

Toppur01

Það er góður siður meðal hjólamanna að heilsast og kasta kveðju á hvern annan. Kastaðu á okkur kveðju í gestabókina. 

Toppur03

Spjall síðan okkar er þinn vettvangur til að tjá þínar skoðanir, segja okkur þitt álit eða bara bulla í okkur. skelltu á okkur línu 

Toppur02

Myndasafnið okkar geymir myndir frá ferðum og öðrum viðburðum. það er alltaf gaman að rifja upp hvernig við tökum okkur út 

Get Adobe Flash player

Fjarðaflakk í Vesturheimi - dagur þrjú o

Árla laugardagsmorguns héldu nokkrar Skutlur út á flugvöll til að sækja dekk. Dekkið beið okkar, stillt og rólegt, en eigandi þess var ekki eins rólegur, því hún þurfti að sitja aftan á hjóli í fyrsta sinn. Hún var því afskaplega fegin þegar Guðmundur dekkjakarl var búinn að skipta því ónýta út fyrir hið nýja og hjólið ökufært. Á meðan snæddu Skutlur morgunverð í Gamla bakaríinu í sól og blíðu. Síðan var haldið af stað í skoðunarferð um firðina og hjólað á Þingeyri, Núp, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdal og Bolungarvík. Bæirnir voru hver öðrum fallegri þó vissulega hafi skrúðgarðurinn Skrúður á Núpi ...

MyBlog | Íris Kristjánsdóttir | Sunnudagur, 24 Júlí 2011

Nánar...

Fjarðaflakk í Vesturheimi - dagur eitt o

Vegna fjölda áskorana (ég nefni engin nöfn í því sambandi en fyrsti stafurinn er Lísa) eru hér settir puttar á lyklaborð, hamrað hratt og fast svo tveir fyrstu dagar Vestfjarðarferðar Skutlanna fái litið dagsins ljós á prenti. Níu Skutlur lögðu af stað úr Ármúlanum árla morguns á fimmtudag, um kl. 11, og héldu áleiðis að Laugum í Sælingsdal. Til að lengja hjólatíma dagsins fórum við Hvalfjörðinn og einnig inn í Borgarfjörð, ekkert vit í að keyra bara 170 km – miklu skemmtilegra að bæta við ca. 80 km. Við komum við á Erpsstöðum og keyptum okkur belju-ís, hann rann ljúflega n...

MyBlog | Íris Kristjánsdóttir | Föstudagur, 22 Júlí 2011

Nánar...

Tóm hamingja allan hringinn.

  Það er þreytt en hamingjusöm Skutla sem sest nú niður á mánudagsmorgni, til að blogga um frábæra hringferð sem farin var núna um helgina (7. – 10. júlí).  Upphaflega voru það 15 Skutlur sem ætluðu í þessa ferð en vegna veikinda, vinnu og annarra óviðráðanlegra ástæðna urðu fimm mjög svo sorgmæddar Skutlur að hætta við.   Við lögðum af stað frá Ármúlanum kl. 10 á fimmtudagsmorgni og tókum Route 1 í fjórum áföngum: Reykjavík – Höfn, Höfn – Egilsstaðir, Egilsstaðir -  Akureyri og loks Akureyri – heim. Hópnum var skipt í tvo minni hópa, þ.e. hóp A, órl. deildin og hóp ...

MyBlog | Ólafía Sigríður Guðjónsdóttir | Mánudagur, 11 Júlí 2011

Nánar...

Af Skutlum og skutlum.

  Í laugardagsmogganum 25.júní s.l. birtist kostuleg grein undir fyrirsögninni „Skutlast í hringferð um landið á hjólum“.  Þar segir að Skutlurnar, eini kvenbifhjólaklúbbur landsins hafi lagt af stað í hringferð um landið, á mótorhjólum sínum, deginum áður. Það eru ýmsar rangfærslur í greininni sem ég nenni ekki að tíunda hér. Það sem mestu skiptir er að leiðrétta þann misskilning að þarna hafi Skutlur verið á ferð. Í þessum myndarlega hópi sem fréttamaður Morgunblaðsins rakst á hafa eflaust verið margar skutlur en skutlur eru ekki endilega alltaf Skutlur. Kvenhjólaklúbburinn Skutlur ætlar vissulega í hringferð um landið í sumar. Við munum þó ekki leggja ...

MyBlog | Ólafía Sigríður Guðjónsdóttir | Mánudagur, 27 Júní 2011

Nánar...

Alþjóðlegur dagur mótorhjólakvenna

    „You just got past by a girl“, stendur með bleikum stöfum aftan á hjálminum mínum. Sumir gætu ef til vill lesið einhvern hroka úr þessum orðum. Ég er ekki að ulla framan í samferðamenn mína í umferðinni heldur er þetta aðeins góðlátleg ábending. Það eru ekki bara karlmenn sem ferðast um og skemmta sér á mótorhjólum. Það eru líka stelpur sem þeysast um göturnar á sínum flottu hjólum og ég er ein af þeim.   Konur á mótorhjólum er auðvitað jafn fjölbreyttur hópur eins og mannflóran öll. Við komum allstaðar að úr þjóðfélaginu og erum á öllum aldri. Við erum kærustur, unnustur, ...

MyBlog | Ólafía Sigríður Guðjónsdóttir | Laugardagur, 7 Maí 2011

Nánar...

More in: MyBlog



Segðu frá þessu á:
Facebook!

Hjólamenningin RSS


Lost girls M/C Margir áhugaverðir tenglar á heimasíðu Lost Girls M/C 
Skoða hittni innihalds : 1217676

Á döfinni

Fréttir

HEKLUSKÓGAR

Síðastliðin þrjú ár hafa félagar í Ferða- og Útivistarfélaginu Slóðavinum farið á vorin til að planta trjám og dreifa áburði ...

Fimmtudagur, 29 Mars 2012

Nánar...

Tillögur til nýrra laga

Samkvæmt nýju lögunum mun lágmarksaldur fyrir almenn mótorhjólaréttindi (A2) færast úr 17 ára í 20 ára eða um þrjú ár. ...

Sunnudagur, 9 Maí 2010

Nánar...

More in: Almennar fréttir

Skutlurnar

Tengdar skutlur

Núna eru
engar Skutlur
inni á vefnum eða samtals 0 skutlur sem greinilega eru ekki úti að hjóla. svo eru 13 gestir á síðunni líka svo allt í allt erum við 13 hangandi á netinu.