Innskráning

Skutlubloggið

Mitt blogg

Heimferð 7 Skutlna

Posted by: Íris Sigurðardóttir

Tagged in: Skutla bloggar

Íris Sigurðardóttir

Heimferðin á þessari ferð var með ýmsu sniði, farið var í smáum og stórum hópum eins og komið hefur fram hér á undan.  Við vorum 7 Skutlur sem komum heim saman í dag, veðrið var frekar leiðinlegt framan af ferð,hvsst, kalt og jaðraði við rigningu en sem betur fer sluppum við, við bleytuna.  Við stoppuðum aðeins í Varmahlíð og teygðum úr okkur og héldum síðan áfram.  Næsta stopp var í Staðarskála og við vorum ekkert smá fegnar að komast þar inn, vorum orðnar kaldar og svangar, við stoppuðum þar í góðan klukkutíma og áður en lagt var af stað aftur var buffið sett uppfyrir nef, regngallar notaðir sem vindstopper og kveikt á hitavestum :)  Það hlýnaði verulega þegar við nálguðumst Borgarnes og enduðum við ferðina í rjómablíðu eins og var þegar við lögðum af stað.  Hjólið hennar Freydísar var reyndar ekki búið að syngja sitt síðasta , það leið yfir það á N1 í Mosó þar sem við stoppuðum, en sem betur fer kom ekkert fyrir nema brotin handbremsa. 

Skutluferð

Posted by: Íris Sigurðardóttir

Tagged in: Stuð

Íris Sigurðardóttir


Nú fer að líða að hjólaferðinni sem við erum búnar að bíða eftir frá því í janúar, þá byrjaði skipulagningin, ferðaplanið gróflega áætlað, gisting pöntuð og tilhlökkunin hófst.  Þetta árið ætlum við að hjóla norður og leggjum af stað miðvikudaginn 8.júli, við ætlum að byrja á því að gista eina nótt á Laugabakka, hjóla eitthvað þar um kring og pirra aðeins bændur og búfénað á suð-vestur landi.  Rennum örugglega inn á Hvammstanga (alltaf gaman að koma þangað ).  Á fimmtudaginn höldum við svo norður til Akureyrar og tökum líklega á okkur krók í leiðinni en hvaða krókur þetta verður er ekki alveg komið á hreint. Við ætlum að eyða helginni á Akureyri og þar um kring, planið er að heimsækja Mývatn,Húsavík,Ásbyrgi svo eitthvað sé nefnt.  Að sjálfsögðu ætlum við að leyfa ykkur öllum að fylgjast með ferðinni og blogga daglega eins og okkur er einni er lagið (Séranum)

 Hlökkum alveg sérstaklega til að hitta MC.Nornir og fleira hjólafólk á norðurlandi :o)


Aðalfundur

Posted by: Íris Sigurðardóttir

Tagged in: Untagged 

Íris Sigurðardóttir

  
Í gærkvöldi var haldinn fjórði aðalfundur Skutlna, Góð mæting var á fundinn eða 23 Skutlur. Byrjað var á að næra sig á mat frá Taco Bell og Tapas barnum og aðeins fengið sér í litlu tánna með. Síðan var tekið til við að funda, Stella stýrði fundinum með sinni alkunnu snilld og passaði upp á að allt færi fram samkvæmt lögum og Sérann ritaði allt sem fram fór þannig að þær sem mættu ekki geta lesið fundargerðina á vefnum.

Þetta árið var kosið um gjaldkera og annan meðstjórnandann og er Guðbjörg áfram gjaldkeri en Eva er komin í stjórn í stað Ástu, við erum komnar með 3 manna skemmtinefn sem í eru Rannveig,Halldóra Gyða og Ólöf og 3 manna ferðanefnd sem í eru Sérann,Fanney og Soffía nú verður líklega tekið hressilega á því í ferðum og skemmtanahaldi.


Skutlur funda

Posted by: Íris Sigurðardóttir

Tagged in: Untagged 

Íris Sigurðardóttir

 
Það voru 12 Skutlur sem mættu á félagsfund þriðjudagskvöldið 24.feb það voru reyndar 13 skráðar en blessuð dúllan hún Rannveig gleymdi fundinum :(  hrindi í ofboði þegar hún fattaði gleymskuna í sér en var þá stödd uppi í Moso.  Talan 13 í Skutlunum kemur orðið æ oftar fyrir og virðist vera orðin okkar tala, hvernig sem á því stendur??


Allt að fara í gang

Posted by: Íris Sigurðardóttir

Tagged in: Untagged 

Íris Sigurðardóttir

 
Nú er ég sko farin að bíða eftir sumrinu.  Vanlíðanin er orðin á háu stigi.  Þessi vetur er búinn að vera frekar leiðinlegur okkur hjólafólki, miklar veðrasviptingar hiti og kuldi til skiptist þó oftar kuldi.  Ég hef nú heyrt í hjólum annað kastið nú í vetur þegar hjólið er þanið upp Reykjavíkurveginn og fæ ég alltaf í magann (langar svo líka) en ég er með ónýta reim og gjörsamlega búin dekk.


Önnum kafnar Skutlur

Posted by: Íris Sigurðardóttir

Tagged in: Untagged 

Íris Sigurðardóttir

 
Í Október skelltum við Skutlur okkur í keilu, það voru mörg flott tilþrif sem voru sýnd þar, Séran var reyndar búin að gefa það út áður að hún ætlaði sér að vinna okkur hinar :) sem var heilmikil áskorun fyrir okkur því hún er mikil keppnismanneskja og gefur ekki tommu eftir.  Ennnnnn hún vann þetta að sjálfsögðu :) en babyið okkar hún Hrafnhildur var skammt undan í stigum þannig að sennilega hefur Sérann eignast þarna keppinaut,  ætlunin er að endurtaka leikinn fljótlega því allar skemmtum við okkur konunglega, en sumar þurfa kannski að æfa þetta örlítið betur, rennurnar þarna eru óþolandi :)


Bikar og baukur

Posted by: Íris Sigurðardóttir

Tagged in: Untagged 

Íris Sigurðardóttir

  
Þriðjudaginn 23.sept. héldum við Skutlur fyrsta inni-fund vetrarins, það var vel mætt á fundinn, 22 Skutlur mættu allar kátar og hressar að vanda :) þrátt fyrir rigningu og hjólaleysi undanfarnar vikur Þetta var eins og besta fermingarveisla því við tökum fram hrærivélina þegar mikið liggur við :)

Efnisskrá fundarins var aðallega eitt, það var að afhenda bikar fyrir flesta ekna kílómetra frá 15.mars til 15 sept. Við sem sáum um þetta vorum með nokkuð góða hugmynd um það hver hlyti þennan titil þ.e. HjólaSkutla ársins.


Upprifjun

Posted by: Íris Sigurðardóttir

Tagged in: Untagged 

Íris Sigurðardóttir

 Við Skutlur ræddum það fyrir mörgum mánuðum að það væri sniðugt að fara í svona upprifjunar-ökutíma og taka keilur, U-beygjur, snigl, hemlun og allt það sem maður er að gera þegar maður lærir á bifhjól. Svo var það 1.maí að við svifum á Njál ökukennara og spurðum hann hvort hann væri til í taka okkur í svona tíma, og þessi tími var sem sagt þriðjudagskvöldið 1.júlí.


Endorfín dagur

Posted by: Íris Sigurðardóttir

Tagged in: Untagged 

Íris Sigurðardóttir

Í dag var Endorfíndagur hjá nokkrum okkar.  Mættum 7 Skutlur á N1 í Ártúnsbrekku kl. 12:00 ferðinni var heitið í Borgarnes á hjólasýningu Rafta.  Í Mosó lentum við á eftir bíl með hestakerru í eftirdragi og það er btw ekki gott því hross eru skíthrædd við mótorhjólaöskrið og það heyrist ekkert lágt í mínu þannig að ég tók þá ákvörðum að gefa þeim forskot og stoppaði við vigtaplanið áður en maður kemur að göngunum, þau gátu þá farið róleg í gegn. 


Frábær dagur

Posted by: Íris Sigurðardóttir

Tagged in: Untagged 

Íris Sigurðardóttir

Þegar ég vaknaði í morgun kl.ca 10 og leit út, þá hugsaði ég dem ömurlegt hjólaveður, rigning og rok.  Það verða ekki margir í þessari fyrstu hópkeyrslu sumarsins, ég leit út um gluggan á 10 mín. fresti og vonaði að veðrið færi nú að lagast.  En það var ekkert aftur snúið með það að mæta, búin að setja fánan á hjólið troða sér í of lítinn galla :)  og koma sér af stað.  Þegar ég keyrði út úr Hafnarfirði voru allar götur þurrar, hmmmmm rignir bara í Hafnarfirði?? Við Skutlur hittumst um kl. 12 og allar voru þurrar nema við sem búum undir rigningarskýi. 


Sumarið 2007 skelltum við okkur hringinn í kringum landið. Ferðin var alveg geggjuð og margt skondið gerðist. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2007. 
Árið 2008 endurtókum við leikinn og fórum annan hring. Ferðin var frábær í alla staði og Skutlurnar skemmtu sér hið besta. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2008. 

Þetta árið er stefnan tekinn á "hálf"-hring norður og er ætlunin að þeysa um nærsveitir norðurlands okkur og öðrum til skemmtunar. Fylgstu með ferðasögunni.