Innskráning

Skutlubloggið

A short description about your blog

 

Um hvítasunnuhelgina lögðu Skutlur land undir fót. Seinni part föstudags brunuðu Skutlur til Þorlákshafnar, þar sem farið var um boð í skemmtiferðaskipið Herjólf. Lísa María fygldi okkur þá leið en þurfti því miður að kveðja á bryggjusporðinum. Siglingin gekk mjög vel og 11 Skutlur stigu á land í Vestmannaeyjum, síðla kvölds í hlýju og mildu veðri, þótt þykk þoka lægi yfir öllu.

 


Laugardagurinn 24. apríl rann upp sólríkur og fagur,  okkur Skutlum til ómældrar gleði enda getur veðrið skipt sköpum þegar mikið stendur til, sérstaklega hjá okkur mótorhjólafólki. Skutlurnar hafa í nokkurn tíma hlakkað mikið til þessa dags. Búið var að bjóða fjölda fólks, bæði á mótorhjólum og án þeirra, að fagna með okkur þeim stóra áfanga í þroskasögu félagsins að hafa eignast klúbbhús. Undanfarnar vikur hafa Skutlurnar verið að þrífa, mála og koma sér fyrir í rúmgóðu húsnæði að Ármúla 19 og nú var kominn tími til að fagna.

 Við tókum daginn snemma og byrjuðum á smá hjólafimi með Njáli, þar sem gerðar voru nokkrar skemmtilegar fimleika- og sirkusæfingar á mótorhjólum.  Þetta var auðvitað bara gaman og komu Skutlur sjálfum sér mest á óvart, hversu fimar og hæfar þær voru til að takast á við þessar þrautir.

 Eftir léttan og snöggan hádegisverð hélt hópurinn í Skutlukot til að gera klárt til að taka á móti gestum sínum.  Byrjað var á því að hræra í vöfflurnar og hella upp á könnuna. Síðan voru vöfflujárnin sett í samband. Þegar búið var að raða átta vöfflujárnum í röð á eldhúsborðið og setja þau öll í samband við sama fjöltengið kom í ljós að rafmagnið í elhúsinu þoldi ekki slíkt álag og allt sló út. Þrátt fyrir snögg viðbrögð rafvirkjans var vandamálið stærra en svo að unnt væri að koma rafmagninu í lag áður en veislan hófst en með góðum rafmangsköplum sem settir voru í samband annars staðar í húsinu, tókst að koma vöflujárnunum af stað aftur. Síðan var kveikt á kertum til að fólk sæi til en það jók bara á stemninguna.


Jólagleði

Posted by: Ólafía Sigríður Guðjónsdóttir

Tagged in: Skutla bloggar

Ólafía Sigríður Guðjónsdóttir

 

 

Síðasta laugardag nóvembermánaðar, daginn fyrir aðventu, tóku Skutlur smá forskot á jólagleðina. Við örkuðum á Jómfrúna við Lækjargötu, með Jómfrúna í broddi fylkingar – að sjálfsögðu. Þarna áttum við yndislega kvöldstund og borðuðum saman jólamat. Mikið var borðað og hlegið og allar skemmtu sér vel (eins og sjá má á  myndasyrpu hér á síðunni). Í tilefni dagsins mættu allar með eitthvað eða í einhverju rauðu. Þarna sáust því rauðar slaufur og borðar, rauðar peysur, rauð nef og sitthvað fleira rautt á sannkölluðum Jóla-Skutlum.


 

Fyrsta sunnudag í oktober fór ég ásamt nokkrum vinum og félögum  í smá rúnt til Keflavíkur. Haustsólin skein skært og ekki sást ský á himni. Vegurinn var þurr og köld gjólan lék við kinn. Litir haustsins skrýddu móa og hraun en í fjarlægð höfðu fjöllin klæðst hvítum klæðum sínum og voru svo undur fín og falleg. Þar sem ég brunaði eftir Reykjanesbrautinni gerði ég mér grein fyrir að þetta yrði trúlega ein af síðustu ferðum ársins á mótorhjóli. Ég átti þó ekki von á að snjóbreiðan næði til byggða strax sólarhring síðar.

Jafnvel þótt ég sé nú búin að sætta mig við að hjólið verði trúlega lítið sem ekkert hreyft næstu sex til sjö mánuði, þá er ég bara nokkuð sátt við að ganga frá því fyrir veturinn. Sumarið 2009 var frábært mótorhjólasumar, alla vega frá mínum bæjardyrum séð. Það voru nokkur atriði sem mestu réðu um hversu vel tókst til. Eitt var veðrið, því óneitanlega skiptir veðrið miklu máli í þessu sporti og veðurguðirnir léku við okkur hér á suðvestur horni landsins. Annað var sú lukka að kynnast Skutlunum, hópi skemmtilegra kvenna sem allar eiga það sameiginlegt að elska mótorhjól. Þriðjudagar voru hápunktur hverrar viku enda eru Skutlurnar einstaklega skemmtilegur og góður félagsskapur. Í júní fór ég með þeim í helgarferð um Suðurland. Það var mikil upplifun og eiga minningarnar úr þeirri ferð eftir að ylja mér á löngum, dimmum vetrarkvöldum. Ég komst því miður ekki með norður en ég reyni að svekkja mig ekki mikið á því. Síðast en alls ekki síst var það mótorhjólaferð til Færeyja sem gerði þetta mótorhjólasumar svo eftirminnilegt. Í ellefu daga samfleytt, var verið að leika sér á mótorhjólum í æðislegu landslagi og frábærum félagsskap.


 

Þegar við Íslendingar hittum útlendinga sem sækja Ísland heim spyrjum við gjarnan: “How do you like Iceland?”. Hins vegar spyrjum við: “Hvernig var veðrið?”,  þegar við hittum samlanda okkar sem lagt hafa land undir fót, hvort sem er hér heima eða á erlendri grundu. Ástæða þess að Íslendingum er svona umhugað um veðrið má eflaust rekja til þess hversu hratt og oft veðrið breytist hér á landi. Frá upphafi landnáms hefur veðrið skipt menn miklu máli, meðal annars í landbúnaði, sjósókn og til ferðalaga. Undanfarin ár hefur veðurfar einnig haft mikil áhrif á leiki og afþreyingu manna, enda krefjast ólíkar íþróttir mismunandi veðurfars. Til dæmis krefst skíða- og vélsleðaiðkun þess að þykkt snjólag sé yfir öllu, þeir sem sigla skútum vilja helst góðan vind og þeir sem stunda stangveiði segja að best veiðist þegar rignir. Við mótorhjólamenn viljum helst af öllu hafa þurra vegi og ekki mikinn vind. Þessi skutla hefur hingað til ekki viljað hreyfa við sínu fína hjóli ef svo mikið sem vænta má einhverrar vætu og vill helst ekki hjóla nema í einstöku blíðviðri. Áður en lagt er af stað í ökuferð eru veðurspár stúderaðar, síðan er horft út um gluggann og hugað að hvort einhver væta sé á vegunum, síðan er litið til himins og litir og form skýjafars látið skera úr um hvort vænlegt sé að viðra mótorfákinn góða.



Þann 20. júní s.l. hittust 14 fallegar konur hjá Shell-stöðinni við Vesturlandsveg. Þessar skutlur voru allar á mótorhjólum og ætluðu saman í tveggja daga ferðalag um Suðurland. Reyndar var ein þeirra á bíl en hann var svo lítill að með góðum vilja má segja að hún hafi verið á stóru mótorhjóli ... með þaki.


Sumarið 2007 skelltum við okkur hringinn í kringum landið. Ferðin var alveg geggjuð og margt skondið gerðist. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2007. 
Árið 2008 endurtókum við leikinn og fórum annan hring. Ferðin var frábær í alla staði og Skutlurnar skemmtu sér hið besta. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2008. 

Þetta árið er stefnan tekinn á "hálf"-hring norður og er ætlunin að þeysa um nærsveitir norðurlands okkur og öðrum til skemmtunar. Fylgstu með ferðasögunni.