Innskráning

Skutlubloggið

Write something to describe your blog

Fiskisúpan góða.

Posted by: Eva Barbara Valdimarsdóttir

Tagged in: Untagged 

Eva Barbara Valdimarsdóttir
  
Einhverra hluta vegna þá hefur það verið draumur hjá mér að taka þátt í Fiskidögum á Dalvík. Ég er mikil áhuga á fiskisúpum og þykir mér þær æðislega góðar. Á fimmtudagskvöld fór ég að spá betur í það hvort ég ætti að gera eitthvað í málinu eða bara gleyma þessu því að engin af hjólasystrum mínum gat farið með mér (ég ætlaði að sjálfsögðu að fara hjólandi) Þetta var nokkuð erfið ákvörðun.... Á ég að fara ein? Treysti ég mér til þess? Ég ákvað að sofa á þessu og dreif mig í húsverkin.

Sumarið 2007 skelltum við okkur hringinn í kringum landið. Ferðin var alveg geggjuð og margt skondið gerðist. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2007. 
Árið 2008 endurtókum við leikinn og fórum annan hring. Ferðin var frábær í alla staði og Skutlurnar skemmtu sér hið besta. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2008. 

Þetta árið er stefnan tekinn á "hálf"-hring norður og er ætlunin að þeysa um nærsveitir norðurlands okkur og öðrum til skemmtunar. Fylgstu með ferðasögunni.